„Við köstuðum víðara neti en vaninn hefur verið“
RÚV: Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina kasta víðara neti við framkvæmd fjárlaga en þær fyrri og að það skýri hærri heildarfjárhæð áhættu. Minnisblað fjárlaga- og greiningardei
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina kasta víðara neti við framkvæmd fjárlaga en þær fyrri og að það skýri hærri heildarfjárhæð áhættu. Minnisblað fjárlaga- og greiningardeildar barst fjárlaganefnd 24. apríl.Heildarfjárhæð áhættu er þar metin á meira en 57 milljarða króna. „Það er mun hærri fjárhæð heldur en fram hefur komið í fyrri áhættumötum,“ segir í minnisblaðinu. Daði Már sagði Vísi að breytt verklag skýrði þetta.Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, situr í fjárlaganefnd. Hann segir skýringu Daða Más ekki standast skoðun.„Ríkisstjórnin var ekki að byrja í gær. Þeir hafa haft nægan tíma, komið með tvær fjármálaáætlanir. Samt sem áður erum við að sjá hér augljós hættumerki sem benda öll í sömu áttina – sem er að menn eru búnir að missa tökin á ríkisfjármálunum,“ segir Guðlaugur Þór.Daði Már segir þetta hins vegar ekki hafa átt að koma Guðlaugi Þór á óvart.„Þetta er sama verklag og var viðhaft í fyrra og þá var þessi upphæð líka svona mikið hærri. Hann sat þá í fjárlaganefnd. Ég skil ekki raunverulega hvaðan hann er að koma,“ segir Daði Már.Ríkisstjórnin sé að reyna að rækta betur það hlutverk fjármálaráðuneytisins að styðja önnur ráðuneyti við að halda sig innan fjárlaga og takast á við alla veikleika.„Við erum að reyna að rækta enn þá betur það hlutverk fjármálaráðuneytisins að styðja fagráðuneytin í að halda sig innan fjárlaga,“ segir Daði Már.„Við köstuðum víðara neti en vaninn hefur verið, það var tekið upp í fyrra. Við það stækkaði mjög þessi upphæð, sem voru metnir veikleikar í rekstri ólíkra ráðuneyta.“„Gögnin tala sínu máli“Guðlaugur Þór segir niðurstöðurnar í minnisblaðinu sýna að ríkisstjórnin hafi misst tökin á ríkisfjármálunum. Fjárlögin og fjármálaáætlun hjálpi ekki í baráttunni við vexti og verðbólgu og svokölluð stöðugleikaregla í ríkisfjármálum sé sprungin.„Ekkert af þessu er auðvitað rétt og það þarf ekki annað en að skoða öll opinber gögn sem til eru um rekstur ríkissjóðs til að sjá að við höfum einmitt verið jafnt og þétt að vinna á hallanum og stefnum að hallaleysi á næsta ári,“ segir Daði Már.„Það að eitthvað fólk sé að ergja sig yfir þeirri niðurstöðu; ég get voða lítið sagt annað en að ég get lítið hjálpað því fólki. Gögnin tala sínu máli.“