Unglingaskóli opnar í Ármúla

RÚV: Stefnt er að opnun nýs unglingaskóla í Ármúla haustið 2027 fyrir 250 nemendur. Skrifstofustjóri eignastýringar hjá umhverfis- og skipulagssviði segir að þannig eigi að svara brýnni þörf nærliggjand

Unglingaskóli opnar í Ármúla
Mynd: Peter Dyllong / Pexels

Stefnt er að opnun nýs unglingaskóla í Ármúla haustið 2027 fyrir 250 nemendur. Skrifstofustjóri eignastýringar hjá umhverfis- og skipulagssviði segir að þannig eigi að svara brýnni þörf nærliggjandi skóla fyrir viðbótarpláss.Borgarráð hefur samþykkt leigusamning við Selið Fasteignafélag ehf. fyrir leik- og grunnskólastarfsemi í Ármúla 28 til 30. Ragnheiður Sigvaldadóttir, skrifstofustjóri eignastýringar hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, segir skólann opna í hverfi sem sé í hraðri uppbyggingu.„Þetta er að leysa úr þessum tímabundna húsnæðisvanda sem er meðal annars vegna viðhalds húsnæðis borgarinnar í skólanum en svo er líka þörf í hverfinu á viðbótarplássi,“ segir Ragnheiður.„Þetta er skóli í hverfi sem er að byggjast mjög hratt upp og þarna alveg í nágrenninu er til dæmis Orkureiturinn, Grensásvegur og svo er stefnt að uppbyggingu í Skeifunni. Þetta svarar í rauninni þessari brýnu þörf nærliggjandi skóla á viðbótarplássi.“Framkvæmdir fara fljótlega á fulltHúsið er tæpir 2.800 fermetrar á þremur hæðum. Leigutími er bundinn til 20 ára og leigan er rúmar 15 milljónir á mánuði. Í húsinu hafa þegar nokkrir leik- og grunnskólar verið með starfsemi, meðal annars á meðan gert er við húsnæði þeirra vegna myglu.Að sögn Ragnheiðar hefur verið leikskólastarfsemi í húsinu í vetur. Hún gerir ráð fyrir því að framkvæmdir við að breyta því í unglingaskóla fari á fullt þegar skólaárinu lýkur.„Það er búið að vera að vinna þetta verkefni í dálítið langan tíma og náttúrlega mikil hönnunarvinna sem hefur átt sér stað. Það er ekki auðvelt að breyta atvinnuhúsnæði í skóla, það eru mjög miklar kröfur gerðar til skólahúsnæðis, þannig að það er búin að vera mikil hönnunarvinna fólgin í því áður en samningurinn sjálfur er lagður fyrir samþykki borgarráðs.“

Upprunaleg grein

RÚV

→ Lesa greinina í heild
Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →