Stjórnvöld verði að færa rök fyrir því vilji þau tefja endurreisn
„Okkur varð það algjörlega skýrar að ríkið stendur þarna að baki ákvörðunum Þórkötlu,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, um fund bæjarstjórnar með forsvarsmönnum fasteignafélagsins Þórkötlu.Bæjarstjórnin sakar stjór
„Okkur varð það algjörlega skýrar að ríkið stendur þarna að baki ákvörðunum Þórkötlu,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, um fund bæjarstjórnar með forsvarsmönnum fasteignafélagsins Þórkötlu.Bæjarstjórnin sakar stjórnvöld um að tefja endurreisn bæjarins. Í gær tilkynnti fasteignafélagið Þórkatla að heimild fyrrverandi eigenda fasteigna, svokallaðra hollvina, til dvalar í húsum sínum yrði takmörkuð við 12 nætur í mánuði. Hvað er hollvinur? Af vef Þórkötlu:Þeir sem selt hafa Þórkötlu hús sín í Grindavík geta gert samning um afnot af húsinu, svokallaðan hollvinasamning.Með því að gera hollvinasamning ákveður “hollvinur” að fá aðgang að húsinu sem Þórkatla hefur keypt af þeim. Hollvinur hefur þá heimild til þess að nota húsið innan þeirra marka sem koma fram í samningnum en meðal þess er heimild til að geyma lausafé í eigninni og sinna viðhaldi og umhirðu eftir hentugleika. Þannig geta seljendur viðhaldið tengslum sínum við húsið og í raun “gætt þess”.„Þetta horfir þannig við okkur að við séum að fjarlægjast verkefnið frekar en hitt. Þetta snýst um grundvallarósk okkar um að komast heim. Ef stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um það að hægja á endurreisn Grindavíkur um eitt til tvö ár, þá er bara mikilvægt að segja það og koma með góð rök fyrir því,“ segir Ásrún.
Heimild: RÚV