Leikskólar og skipulag eru ofarlega í hugum Kópavogsbúa

Leikskólar og skipulagsmál eru Kópavogsbúum ofarlega í huga fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.Kópavogur er næstfjölmennasta sveitarfélag landsins, um áramótin bjuggu þar rúmlega fjörutíu þúsund manns.Á liðnu kjörtímabili hafa Sjálfstæðis- og Fra

Leikskólar og skipulag eru ofarlega í hugum Kópavogsbúa
Mynd: K / Pexels

Leikskólar og skipulagsmál eru Kópavogsbúum ofarlega í huga fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.Kópavogur er næstfjölmennasta sveitarfélag landsins, um áramótin bjuggu þar rúmlega fjörutíu þúsund manns.Á liðnu kjörtímabili hafa Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn haft þar meirihluta, nú geta Kópavogsbúar valið á milli sjö flokka og framboða, sem auk þessara tveggja eru Viðreisn, Sósíalistaflokkurinn, Miðflokkurinn, Samfylkingin og Vinstri græn og óháðir.Sumir þeirra Kópavogsbúa sem fréttastofa hitti á förnum vegi telja bæinn kominn að vaxtarmörkum – nóg sé komið af þéttingu og stækkun. Sum hverfi beri ekki þann umferðarþunga sem fylgir fleiri íbúum og fjölga þyrfti grænum svæðum þar sem fjölskyldur geti notið lífsins.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →