Kjarnafæði-Norðlenska skoðar flutning frá Svalbarðseyri í nýjar höfuðstöðvar á Akureyri
RÚV: Kjarnafæði-Norðlenska hefur óskað eftir lóð hjá Akureyrarbæ fyrir átta þúsund fermetra höfuðstöðvar, sláturhús og kjötvinnslu. Verði af því, fer fyrirtækið frá Svalbarðseyri, þar sem það er stærsti
Kjarnafæði-Norðlenska hefur óskað eftir lóð hjá Akureyrarbæ fyrir átta þúsund fermetra höfuðstöðvar, sláturhús og kjötvinnslu. Verði af því, fer fyrirtækið frá Svalbarðseyri, þar sem það er stærsti vinnuveitandinn sveitarfélagsins.Kjarnafæði-Norðlenska er með ýmsa starfsemi, slátrun, pökkun og skrifstofur, á þremur stöðum við Eyjafjörð. Við Grímseyjargötu og Fjölnisgötu á Akureyri og á Svalbarðseyri þar sem starfsemin er umfangsmest. Er það stærsti vinnustaður Svalbarðstrandarhrepps.Þar vinna um hundrað manns og fjörutíu þeirra búa Svalbarðseyrarmegin við Eyjafjörð. Breytingar gætu verið framundan því framkvæmdastjóri Kjarnafæðis-Norðlenska óskaði í apríl eftir að hefja viðræður við Akureyrarbæ um lóð til að færa alla starfsemina við Eyjafjörð undir sama þak. Þar yrðu nýjar höfuðstöðvar, sláturhús og kjötvinnsla og lagt til að það gæti risið á iðnaðarsvæði við Týsnes, norðan Akureyrar.Hagræðing að fækka starfsstöðvum„Starfsstöðvar félagsins á svæðinu eru kominar til ára sinna og henta breyttri starfsemi félagins ekki eins vel og áður auk þess sem umtalsverð hagræðing er talin felast í að koma starfseminni undir eitt þak“, segir í erindi Ágústs Torfa Haukssonar, til skipulagsráðs á Akureyri.Þórunn Sif Harðardóttir, sveitarstjóri í Svalbarðsstrandarhreppi, segir flutningana geta orðið sveitarfélaginu þunga.„Flutningurinn væri mikið áfall fyrir sveitarfélagið ef af yrði. Um er að ræða náttúrlega einn af mikilvægustu burðarásum atvinnulífsins á svæðinu og þetta myndi hafa verulega áhrif bæði á atvinnuöryggi íbúa og bara tekjustofna sveitarfélagsins“, segir sveitarstjórinn á Svalbarðseyri.Svalbarðsstrandarhreppur vill halda í stærsta vinnuveitandannÁformin eru skammt komin, erindið var tekið fyrir í skipulagsráði 15. apríl. Þar var vel tekið í það og skipulagsfulltrúa falið að afla frekari gagna og ræða framhaldið.„Við erum í starfsemi sem þrífst vel með öðrum iðnaði og styður við hann. Vegna eðlis starfseminnar teljum við að staðsetning sem er á atvinnusvæði í hæfilegri fjárlægð frá íbúðarhverfum henti okkur best. Lóð á ódeiliskipulögðu svæði í landi Ytra-Krossaness austan Týsness finnst okkur aðlaðandi“, segir í erindi Kjarnafæðis-Norðlenska, sem óskar eftir 25.000 fm lóð undir 7-8.000 fm byggingu.Þórunn stefnir á að ræða við forsvarsmenn fyrirtækisins fljótlega - hún hafi fyrst heyrt af áformunum í fjölmiðlum.„Og ég vonast eftir að við getum átt uppbyggilegt samtal varðandi lausnir og við munum leggja okkur fram við að koma til móts við fyrirtækið, það er alveg ljóst“, segir Þórunn.