Spáir því að stýrivextir hækki í næstu viku

Greiningardeild Landsbankans spáir því að stýrivextir hækki um 0,25 prósent í næstu viku. Þetta rökstyður hún með því að verðbólga sé enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar þrálátar. Peningastefnunefnd fer yfir stöðuna í næstu viku og tekur ákvörðun

Spáir því að stýrivextir hækki í næstu viku
Mynd: Italo Crespi / Pexels

Greiningardeild Landsbankans spáir því að stýrivextir hækki um 0,25 prósent í næstu viku. Þetta rökstyður hún með því að verðbólga sé enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar þrálátar. Peningastefnunefnd fer yfir stöðuna í næstu viku og tekur ákvörðun um hversu háir stýrivextir skuli vera. Ákvörðunin verður kynnt á miðvikudag. Stýrivextir hækkuðu úr 7,25 í 7,50 prósent við síðustu vaxtaákvörðun. Landsbankinn spáir því að verðbólga hjaðni í maí og verði 4,9 prósent. Íslandsbanki telur að hún standi óbreytt í 5,2 prósentum.Merki Seðlabankans.RÚV / Ragnar Visage

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →