Áhersla á magn umfram gæði í húsnæðisuppbyggingu

Borgarhönnuður telur skipulagsferli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu gallað, því það feli í sér hvata sem leggja áherslu á magn á kostnað gæða. Edda Ívarsdóttir leggur til að sveitarfélögin leiti leiða til að færa hönnunina fyrr inn í ferlið, ti

Áhersla á magn umfram gæði í húsnæðisuppbyggingu
Mynd: Roman Biernacki / Pexels

Borgarhönnuður telur skipulagsferli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu gallað, því það feli í sér hvata sem leggja áherslu á magn á kostnað gæða. Edda Ívarsdóttir leggur til að sveitarfélögin leiti leiða til að færa hönnunina fyrr inn í ferlið, til að spara fjármagnskostnað og gera uppbyggingu mannvænni.Hún segir fyrirmyndirnar til staðar á Norðurlöndum, þar sem borgir og sveitarfélög ganga til samstarfs við uppbyggingaraðila um þróun á uppbyggingareitum í gegnum forval eða samkeppni. Slíkt hefur verið gert hérlendis og hefur það gengið vel.Rætt var við Eddu í Kastljósi í kvöld, en einnig við Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, aðjúnkt í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands og fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar. Hún segir skipulagsmálin alltaf vera flókinn málaflokk og tók undir með Eddu, þó hún teldi forval ekki alltaf eiga við.„En það sem á hins vegar alltaf við er það sem hún líka nefndi, við þurfum að taka hönnunina framar í ferlinu, hönnunin þarf líka að gerast þegar við erum að vinna deiliskipulag.“Að sögn Ásdísar Hlakkar er það eilíft viðfangsefni í skipulagsmálum hvernig tryggja megi að sú verðmætaaukning sem verði þegar búnar eru til uppbyggingarheimildir í skipulagi skili sér til samfélagsins.„Þetta er eitthvað sem við erum alltaf að kljást við og þurfum að, núna í ljósi reynslu síðustu ára, við þurfum að endurskoða skipulagslöggjöfina til þess að ná betur utan um þetta.“Nánar var fjallað um málið í Kastljósi kvöldsins, hægt er að nálgast þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan.Skakkir hvatar í skipulagsferlum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu gera það að verkum að húsnæðisuppbygging verður of dýr og áherslan verður á magn umfram gæði. Aðjúnkt í skipulagsfræðum segir málaflokkinn vera flókinn og tilvikin fjölbreytt.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →