Brú yfir Djúpafjörð boðin út í næstu viku

Vegagerðin stefnir á að bjóða út byggingu rúmlega 200 metra langrar netbogabrúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum í næstu viku.„Undirbúningur fyrir smíði bogabrúar yfir Djúpafjörð hefur staðið yfir um langt skeið, enda um vandasamt verkefni

Brú yfir Djúpafjörð boðin út í næstu viku
Photo by aa aaa / Unsplash

Vegagerðin stefnir á að bjóða út byggingu rúmlega 200 metra langrar netbogabrúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum í næstu viku.„Undirbúningur fyrir smíði bogabrúar yfir Djúpafjörð hefur staðið yfir um langt skeið, enda um vandasamt verkefni að ræða. Brúin verður af sambærilegri gerð og brýrnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu, nema hún verður bæði lengri og hærri en þær,“ segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.Tvær steyptar brýr yfir Djúpafjörð og Gufufjörð eru þegar í vinnslu og þeim framkvæmdum á að ljúka um áramót. Brúin yfir Djúpafjörð er lokahnykkurinn í vegbótum á Vestfjarðavegi 60 um sunnanverða Vestfirði.Brúin verður átta metrum yfir sjávarmáli og hægt verður að sigla undir hana. Áætlað er að brúin ásamt vegtengingum frá Hallsteinsnesi yfir í Skálanes verði tilbúin í lok árs 2028.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn

Aðrar fréttir

📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →