Gallar á glænýju sjúkrahúsi í Álaborg

Nýtt háskólasjúkrahús í Álaborg í Danmörku var vígt við formlega athöfn í vikunni. Sjúkrahúsið er þegar umdeilt en átta fagfélög hafa gagnrýnt slæman aðbúnað í húsinu og óviðunandi starfsaðstæður. Þar á meðal eru fagfélög ungra lækna og hjúkrunarfræð

Gallar á glænýju sjúkrahúsi í Álaborg
Mynd: adrian vieriu / Pexels

Nýtt háskólasjúkrahús í Álaborg í Danmörku var vígt við formlega athöfn í vikunni. Sjúkrahúsið er þegar umdeilt en átta fagfélög hafa gagnrýnt slæman aðbúnað í húsinu og óviðunandi starfsaðstæður. Þar á meðal eru fagfélög ungra lækna og hjúkrunarfræðinga í Danmörku.Danska ríkisútvarpið, DR, greinir frá málinu.Gagnrýni fagfélaganna nær meðal annars til slæms tæknibúnaðar sem er sagður bitna á þjónustu og viðbragðstíma og þess að ekki sé nægilega vel gætt að einkalífi sjúklinga. Þá er gagnrýnt að ekki hafi verið tekin skref til að draga úr dagsbirtu í húsinu sem er sögð valda alls konar erfiðleikum.Heilsuhagfræðingur sem starfað hefur í áratugi segist aldrei hafa heyrt um viðlíka mál. Tengja megi mögulega ágalla á sjúkrahúsinu við tafir sem voru á smíði þess.Þrettán ár í smíðiNýja Háskólasjúkrahúsið í Álaborg hefur verið í bígerð síðan 2012, en fyrsta skóflustungan var tekin árið 2013. Byggingin er sú stærsta sem byggð hefur verið á Norður-Jótlandi og er um 180.000 fermetrar að stærð, að meðtöldu þjónustuhúsi sem telur 20 þúsund fermetra.Þann 8. febrúar á þessu ári voru fyrstu sjúklingarnir fluttir í sjúkrahúsið. Degi síðar voru fyrstu skurðaðgerðir á sjúkrahúsinu framkvæmdar. Það var síðan á þriðjudag sem María Danadrottning vígði nýja háskólasjúkrahúsið.Nú hafa átta fagfélög lýst yfir þungum áhyggjum vegna sjúkrahússins. Á því séu töluverðir ágallar sem nauðsynlegt sé að bæta úr. Af þessu tilefni hafa fagfélögin haft samband við opinberar vinnueftirlits- og heilbrigðiseftirlitsstofnanir og óskað eftir því að metið verði hvort aðstæður á sjúkrahúsinu uppfylli lög um starfsaðstæður og kröfur um öryggi sjúklinga.Fagfélögin átta eru meðal annars félög ungra lækna, hjúkrunarfræðinga, rafvirkja og blikksmiða- og pípulagninga.„Félagsmenn okkar eru farnir að finna fyrir gremju og vanmætti því þeir hafa verið að reyna að vekja athygli á þessum mistökum í marga mánuði án þess að neinn hlusti,“ segir Vibe Lyng Lindgren, talsmaður Ungra lækna á Norður-Jótlandi.Dagsbirtan baki ýmisleg vandræðiÍ kvörtunum félaganna er vakin athygli á aðför að einkalífi sjúklinga nýja háskólasjúkrahússins.Starfsmenn hafi slæma reynslu af því að þjónusta skjólstæðinga í rýmum sem ekki eru frágengin. Í því samhengi verði jafnvel að framkvæma skoðanir á sjúklingum sem eru óklæddir fyrir framan glerhurðir og allra augu. Þá er gerð athugasemd við að gögn sjúklinga séu aðgengileg almenningi sem er inni á biðstofu.Þessar athugasemdir varða atriði sem tengist fleiri meintum ágöllum á byggingunni – gluggana. Sjúkrahúsið er glæsileg bygging með miklu magni glugga en starfsfólk segir það skapa ýmis vandræði.Fyrir það fyrsta hafi ekki verið hugað að því að draga úr dagsbirtu sem berist inn í sjúkrahúsið. Þetta hefur ýmisleg neikvæð áhrif. Starfsmenn spítalans lýsa því að eiga í erfiðleikum með að sjá á tölvuskjái inni í byggingunni á daginn vegna mikillar birtunnar. Þetta veldur ekki aðeins óþægindum heldur einnig óvissu um gæði myndgreiningar. Þá segir að dagsbirtan í samblandi við ónæga loftræstingu valdi því að afar heitt verði í húsinu.Athugasemdir eru einnig gerðar við gæði boðbúnaðar sem notaður er til að kalla eftir aðstoð. Sjúklingar eigi ekki möguleika á að fá hjálp ef þeir detta, veikjast skyndilega eða þurfa á aðstoð að halda. Að lokum er gagnrýndur skortur á plássi til að geyma skrár.Unnið að lausnumStjórn Háskólasjúkrahússins í Álaborg segir í yfirlýsingu að gagnrýni fagfélaganna komi sér í opna skjöldu. Í henni segir að margar áskoranir hafi verið við flutninga í nýju bygginguna sem hafi áhrif á vinnuumhverfi og nauðsynlegt sé að vinna úr. Unnið sé með viðeigandi aðilum að því að finna lausnir, bæði til langs og skamms tíma.Jes Søgaard, prófessor í heilsuhagfræði við Háskólann í Suður-Danmörku, segist ekki muna eftir álíka atviki. Hann hefur starfað í heilbrigðisgeiranum síðan 1980.„Þegar smíði sjúkrahúss hefur tafist svo lengi er hætta á að einhver vandamál komi upp þegar það er tekið í notkun,“ segir Søgaard DR.Vandræðin koma honum þó ekki á óvart, enda hafi legið fyrir að áskoranir hafi mætt byggingaraðilum við smíði hússins. Framkvæmdin hafi tafist töluvert vegna þessa.Framkvæmdir við nýjan Landspítala í Reykjavík hófust árið 2019. Þær hafa sömuleiðis gengið hægar en vonast var til og ekki er áætlað að sjúkrahúsið verði tekið til starfa fyrr en í árslok 2028.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →