Saka stjórnvöld um að beita Þórkötlu til að tefja endurreisn bæjarins

Bæjarstjórn Grindavíkur segir stjórnvöld vísvitandi beita Fasteignafélaginu Þórkötlu til að tefja endurreisn bæjarins og koma í veg fyrir að fjölskyldur geti snúið heim.Þetta segir í yfirlýsingu frá bæjarstjórn Grindavíkur, sem fundaði með fasteignaf

Saka stjórnvöld um að beita Þórkötlu til að tefja endurreisn bæjarins
Mynd: Braggi.is

Bæjarstjórn Grindavíkur segir stjórnvöld vísvitandi beita Fasteignafélaginu Þórkötlu til að tefja endurreisn bæjarins og koma í veg fyrir að fjölskyldur geti snúið heim.Þetta segir í yfirlýsingu frá bæjarstjórn Grindavíkur, sem fundaði með fasteignafélaginu í fyrradag.Bæjarstjórnin segir að fundurinn hafi staðfest grun bæjaryfirvalda um að það væri ekki fasteignafélagið sem stæði í vegi fyrir lausnum, heldur stjórnvöld.„Á fundinum kom skýrt fram af hálfu fulltrúa Þórkötlu að félagið sé nánast að fullu í eigu ríkisins og þurfi að lúta vilja eiganda síns þegar kemur að stórum ákvörðunum um endurkaup og búsetu,“ segir í yfirlýsingunni.Bæjarstjórn segir að enn sé þrengt að íbúum með nýkynntum áformum um að takmarka heimild fyrrverandi eigendum fasteigna, svokölluðra hollvina, til dvalar í húsum sínum við 12 nætur í mánuði.„Bæjarstjórn lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá neikvæðu og fjandsamlegu afstöðu sem stjórnvöld sýna gagnvart skjótri enduruppbyggingu bæjarfélagsins. Stjórnvöld hafa skýlt sér á bak við áhættumat sem unnið hefur verið án aðkomu eða samráðs við sveitarfélagið og tekur lítið sem ekkert tillit til þeirra miklu mótvægisaðgerða sem þegar hefur verið ráðist í af hálfu bæjarins,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.„Ný bæjarstjórn Grindavíkur krefst þess að ríkisstjórnin stígi fram úr skugga Þórkötlu og tali skýrt við heimamenn. Grindavíkurbær er tilbúinn til samstarfs um raunhæfar lausnir og krefst þess að heimkoma þeirra Grindvíkinga sem hennar óska, verði ekki tafin að óþörfu.“

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →