Sólin hleður síma og tölvur nemenda
Tíu sólarsellur hafa verið á þaki Verkmenntaskólans á Akureyri síðan í mars. Þær skila um þremur kílóvöttum af raforku á góðum degi. Þess utan er lítil vindmylla sem keppist við að framleiða orku.Haukur Eiríksson, kennari í rafdeild VMA, segir kennar
Tíu sólarsellur hafa verið á þaki Verkmenntaskólans á Akureyri síðan í mars. Þær skila um þremur kílóvöttum af raforku á góðum degi. Þess utan er lítil vindmylla sem keppist við að framleiða orku.Haukur Eiríksson, kennari í rafdeild VMA, segir kennara og nemendur enn vera að læra á sjálfbæru kennslustofuna í sameiningu - en telur deginum ljósara að hægt sé að gera þetta á stærri skala.„Við eigum eiginlega allt of mikið af orku, þannig að við þurfum að koma þessu inn á fleiri stofur eða að fara að hlaða einhverja bíla. Og núna bara svo við sjáum hvað við erum að framleiða mikið þurfum við að hafa ofna í gangi annars hleðst hún bara upp.“
Heimild: RÚV