Formaður BSRB segir stöðuna sláandi
Ný könnun um stöðu barnafólks á vinnumarkaði sýnir sláandi niðurstöður að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur, formanns BSRB. Þar kemur m.a. fram að 40% barnafólks á erfitt með að ná endum saman, 60% einstæðra foreldra geta ekki mætt óvæntum útgjöldum og
Ný könnun um stöðu barnafólks á vinnumarkaði sýnir sláandi niðurstöður að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur, formanns BSRB. Þar kemur m.a. fram að 40% barnafólks á erfitt með að ná endum saman, 60% einstæðra foreldra geta ekki mætt óvæntum útgjöldum og 12% hafa ekki efni á að greiða fyrir þá leikskólavistun sem þau þurfa.„Þessi könnun Vörðu sýnir með mjög skýrum hætti að staða barna; jöfn tækifæri eða möguleikar barna, fara eftir hjúskaparstöðu foreldra og uppruna þeirra,“ segir Sonja Ýr.Í könnuninni, sem gerð var meðal félagsfólks aðildarfélaga ASÍ og BSRB, sögðu tveir af hverjum þremur foreldrum að þjónusta síns sveitarfélags styddi ekki við barnafjölskyldur.Segir sveitarfélögin skila auðu„Við sjáum, á þessu tímabili, að leikskólagjöldin hafa verið að hækka og sömuleiðis fyrir frístund. Meirihluti sveitarfélaga er að skila auðu þegar kemur að húsnæðisöryggi láglaunafólks. Og það er auðvitað stærsti útgjaldaliður heimilanna,“ segir Sonja Ýr.Mikilvægast að tryggja húsnæðisöryggiVerða þessar niðurstöður teknar með að samningaborðinu í næstu kjaraviðræðum?„Þegar það er verið að huga að því hvernig megi bregðast við ef kjarasamningar myndu mögulega losna í haust, þá leggjum við hjá BSRB ríka áherslu á að skoða sérstaklega stöðu þessara hópa sem eru útsettastir fyrir að búa við fátækt, segir Sonja Ýr.Núna liggja þessar niðurstöður fyrir, hvað mynduð þið hjá BSRB vilja sjá gert? „Mikilvægast í þessu er að tryggja húsnæðisöryggi fyrir láglaunafólk. Sveitarfélögin hafa mest um það að segja. Og að leikskólagjöldin séu með þeim hætti að foreldrar ráði við þau.“Formaður BSRB segir nýja skýrslu um slæma fjárhagsstöðu barnafólks verða til hliðsjónar í næstu kjarasamningum. Fjórir af hverjum tíu foreldrum í ASÍ og BSRB eiga erfitt með að ná endum saman.
Heimild: RÚV