Borgin semur um leigu á húsi í Ármúla fyrir skólastarfsemi

RÚV: Borgarráð hefur samþykkt leigusamning við Selið Fasteignafélag ehf. fyrir leik- og grunnskólastarfsemi í Ármúla 28 til 30.Á sama fundi var breyting á deiliskipulagi á reitnum samþykkt. Í henni fels

Borgin semur um leigu á húsi í Ármúla fyrir skólastarfsemi
Mynd: Roman Biernacki / Pexels

Borgarráð hefur samþykkt leigusamning við Selið Fasteignafélag ehf. fyrir leik- og grunnskólastarfsemi í Ármúla 28 til 30.Á sama fundi var breyting á deiliskipulagi á reitnum samþykkt. Í henni felst að heimilt er að byggja við húsið og gera útisvæði. Þannig á að leysa úr tímabundnum húsnæðisvanda og mæta brýnni þörf nærliggjandi skóla á viðbótarplássi.Húsið er tæpir 2.800 fermetrar á þremur hæðum. Leigutími er tímabundinn til 20 ára og er leigan rúmar 15 milljónir króna á mánuði. Í fylgigögnum fundargerðar kemur fram að gert sé ráð fyrir leigu í ramma skóla- og frístundasviðs.Í húsinu hafa þegar nokkrir leik- og grunnskólar verið með starfsemi, meðal annars á meðan gert er við húsnæði þeirra vegna myglu.

Upprunaleg grein

RÚV

→ Lesa greinina í heild
Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →