Innviðirnir tilbúnir fyrir áframhaldandi vöxt á Vatnsnesi
Innviðir á Vatnsnesi eru tilbúnir til að styðja við áætlaða uppbyggingu KEF Center, sem felur í sér allt að 1.100 nýjar íbúðir og öflugt atvinnu- og þjónustusvæði.
Metnaðarfull framtíðarsýn um uppbyggingu KEF Center á Vatnsnesi í Reykjanesbæ gerir ráð fyrir byggingu allt að 1.100 nýrra íbúða, öflugu atvinnu- og þjónustusvæði, stækkaðri heilsulind og nýju baðlóni (KEF Lagoon).
Verkefnið, sem hjónin Steinþór Jónsson og Hildur Sigurðardóttir kynntu nýverið, felur í sér stórfellda umbreytingu svæðisins á næstu árum. Slík stóruppbygging krefst aukinnar getu innviða og veitukerfa, en forsvarsmenn verkefnisins hafa verið í nánu samráði við HS Veitur frá upphafi.
Páll Erland, forstjóri HS Veitna, staðfestir að uppbygging KEF Center sé mikilvægur liður í eflingu veituinnviða í sveitarfélaginu. HS Veitur hafa metið nauðsynlega styrkingu veituinnviða miðað við fyrirliggjandi framtíðarsýn fyrir KEF Center.
Ljóst er að með markvissri endurnýjun og styrkingu á svæðinu munu veitukerfin geta uppfyllt þarfir fyrir íbúða- og skrifstofuhúsnæði. Vinna er hafin hjá HS Veitum við að fara yfir forsendur verkefnisins varðandi afhendingu á heitu vatni fyrir fyrirhugað baðlón á svæðinu.
HS Veitur hafa um áratugaskeið byggt upp öflug og traust veitukerfi sem eru vel í stakk búin til að sinna áframhaldandi vexti, bæði hvað varðar íbúðabyggð og atvinnulíf.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir
Heimild: Víkurfréttir