Innanhússfrágangur í rannsóknahúsi Landspítala við Hringbraut
Nýr Landspítali óskar eftir tilboðum í innanhússfrágang í rannsóknahúsi við Hringbraut í Reykjavík, með skilafrest 10. september 2026.
Nýr Landspítali ohf. óskar eftir tilboðum í útboði nr. I2063 á innanhússfrágangi í rannsóknahúsi Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Rannsóknahúsið er 19 þúsund fermetrar, 5 hæða bygging ásamt kjallara sem er tengd nálægum byggingum með göngum neðanjarðar. Helstu verkþættir útboðsins eru lagnavinna, rafkerfi, innréttingar og innanhússfrágangur.
Starfseiningar í rannsóknahúsi verða meinafræði, lífsýnasafn, rannsóknakjarni, klínísk lífefnafræði og blóðmeinafræði, frumuræktunarkjarni, frumumeðhöndlun, erfða- og sameindalæknisfræði, ónæmisfræði og sýkla- og veirufræði. Starfsemi blóðbanka mun einnig flytjast í bygginguna. Meginverkefni rannsóknarstofu Landspítala eru þjónustu- og tilvísunarrannsóknir fyrir allar heilbrigðisstofnanir í landinu, auk kennslu, vísindarannsókna og umsjón með rannsóknartengdu námi.
Tilboðum skal skila í gegnum útboðskerfið Tendsign.is fyrir kl. 13:00, fimmtudag 10. september 2026. Útboðsgögn verða afhent 13. júlí 2026 kl. 00:00. Opnun tilboða fer fram 10. september 2026 kl. 13:15.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is