Íhuga að krefja Hafnarfjörð um bætur
Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um nýjan skóla hefur runnið út í sandinn vegna þess að bærinn gat ekki útvegað lóð. Tækniskólinn íhugar nú að krefja Hafnarfjörð um bætur vegna tafa.
Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um að nýr skóli risi í bænum hefur runnið út í sandinn eftir að bærinn gat ekki útvegað lóð eins og heitið hafði verið.
Áform um að reisa skólann við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði voru fyrst kynnt fyrir fimm árum. Tækniskólinn, sem er stærsti framhaldsskóli landsins með um 3.000 nemendur, starfar nú á nokkrum stöðum. Á nýjum stað átti að koma starfseminni undir eitt þak á 30.000 fermetrum, sem áætlað var að kosta 27 milljarða. Skólinn átti að vera fullbyggður árið 2029.
Í hverfi bæjarins stendur til talsverð uppbygging sem meðal annars tekur mið af því að þarna rísi skólinn. Deiliskipulag vegna skólans var samþykkt í vor.
„Þetta er alls ekki gott en við erum að reyna að gera þetta í þokkalegu samkomulagi, þannig að við gerum nú ekki illt verra,“ segir Egill Jónsson, stjórnarformaður Tækniskólans. „En þetta þýðir seinkun á verkefninu. Við þurfum að leita annarrar lóðar. Við áætlum að þetta tefji málið í að minnsta kosti tvö ár þegar allt er talið. Gæti tafið það meira.“
Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir að ekki hafi verið hægt að halda áfram með verkefnið þar sem Tækniskólinn hefði ekki getað beðið lengur eftir að framkvæmdir hæfust. „Þannig að ákvörðunin var sú að leita annað þar sem er hægt að komast hraðar af stað,“ segir Orri.
Stjórnendum skólans hugnast ekki önnur staðsetning í Hafnarfirði. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, sagði í Kastljósi í gær að skólinn gæti risið í Úlfarsárdal. „Okkur hugnast sú staðsetning satt best að segja ljómandi vel, svona á fyrstu skrefum,“ svarar Egill spurður um hvernig stjórnendum Tækniskólans lítist á þá hugmynd borgarstjóra.
Mosfellsbær vill fá Tækniskólann.
Heimild: RÚV