IDDP-3: Stærsta tækifæri jarðhitans til framtíðar á Íslandi

Orkuveitan, móðurfélag Orku náttúrunnar, leiðir þriðja hluta IDDP verkefnisins í samstarfi við Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun og HS Orku. Verkefnið snýst um að þróa tækni til að virkja ofurheitan jarðhita, sem gæti aukið raforkuframleiðslu án þess að stækka vinnslusvæði.

IDDP-3: Stærsta tækifæri jarðhitans til framtíðar á Íslandi
Mynd: Pexels / David Hitchcock

IDDP-3 verkefnið er lykilskref í Djúpnýtingarvegferð Orkuveitunnar og hluti af stærri sýn um að opna nýjan kafla í nýtingu jarðhita. Markmiðið er að prófa nýjar tæknilausnir og kanna hvernig megi nýta ofurheitan jarðhita á öruggan og hagkvæman hátt til framtíðar, en hitastig fer yfir 350–400°C.

Fyrir Orku náttúrunnar gæti þetta þýtt aukna raforkuframleiðslu án þess að stækka þurfi vinnslusvæði, minni þörf á að bora nýjar holur og meiri sveigjanleika í nýtingu auðlindarinnar. Það myndi auka rekstraröryggi Nesjavalla- og Hellisheiðarvirkjunar og þannig orkuöryggi samfélagsins til lengri tíma.

Verkefnið er sérstaklega mikilvægt á tímum þar sem eftirspurn eftir endurnýjanlegri orku fer vaxandi og samfélagið kallar eftir bæði auknu framboði og ábyrgri nýtingu náttúruauðlinda.

→ Lesa grein hjá ON

Heimild: on.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →