Íbúð aldraðra við Kleifarhraun
Vestmannaeyjabær hefur auglýst lausa til umsóknar félagslega leiguíbúð fyrir eldri borgara við Kleifarhraun. Umsóknarfrestur er til 27. ágúst.
Vestmannaeyjabær hefur auglýst lausa til umsóknar félagslega leiguíbúð fyrir eldri borgara við Kleifarhraun.
Leiguverð íbúðarinnar mun fylgja leiguverði annarra íbúða í eigu Vestmannaeyjabæjar. Umsóknarfrestur er til 27. ágúst næstkomandi.
Umsóknir um íbúðina eru metnar út frá félagslegum, heilsufarslegum og fjárhagslegum forsendum.
Hægt er að sækja um íbúðina í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu- og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23, þar sem einnig skal skila fylgigögnum.
Mikilvægt er að skila inn öllum gögnum sem óskað er eftir á umsóknareyðublaði eða nýjum gögnum ef aðstæður hafa breyst.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Vestmannaeyjabær
Heimild: Vestmannaeyjabær