Íbúa­fund­ur um fram­tíð Víf­ils­staða

Garðabær býður íbúum til fundar um framtíð Vífilsstaða þar sem tillaga að nýju deiliskipulagi verður kynnt. Fundurinn er hluti af forkynningu skipulagsins samkvæmt lögum.

Íbúa­fund­ur um fram­tíð Víf­ils­staða
Mynd: Engin Akyurt / Pexels

Garðabær býður íbúum til fundar um framtíð Vífilsstaða.

Á fundinum verður kynnt tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaða, farið yfir helstu markmið og forsendur skipulagsins og svarað fyrirspurnum.

Í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 stendur nú yfir forkynning á tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar stendur fyrir kynningarfundi sem haldinn verður í Sveinatungu, Garðatorgi.

→ Lesa upprunaleg grein á Póstar.is

Heimild: Póstar.is

Deila Facebook X LinkedIn