Hrísey Enn beðið eftir sparkvelli
Enn er beðið eftir því að sparkvöllur rísi í Hrísey, en hverfisráð Hríseyjar hefur lýst yfir vonbrigðum með að framkvæmdir hafi ekki hafist síðastliðið sumar. Ráðið ítrekar mikilvægi þess að gerð sparkvallar verði á fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyri
Enn er beðið eftir því að sparkvöllur rísi í Hrísey, en hverfisráð Hríseyjar hefur lýst yfir vonbrigðum með að framkvæmdir hafi ekki hafist síðastliðið sumar. Ráðið ítrekar mikilvægi þess að gerð sparkvallar verði á fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár.
Á fundi sínum nýverið fjallaði hverfisráðið um biðina eftir sparkvellinum og benti á að umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrarbæjar hefði snemma í júní tekið jákvætt í erindið. Þá var sviðsstjóra falið að vinna að hönnun og kostnaðaráætlun fyrir verkið, áður en málinu var vísað til fjárhagsáætlunar næsta árs.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkublaðið
Heimild: Víkublaðið