Hringveginum lokað við Jökulsárlón annað kvöld

Hringveginum við Jökulsárlón verður lokað annað kvöld vegna malbikunarframkvæmda og viðgerða á brúarenda.

Hringveginum lokað við Jökulsárlón annað kvöld
Mynd: needpix.com (CC0)

Hringveginum verður lokað við Jökulsárlón annað kvöld vegna malbikunarframkvæmda og viðgerða.

Lokunin mun standa frá klukkan 20 á sunnudagskvöld og til klukkan 7 á mánudagsmorgun.

Vegagerðin hyggst gera við malbik við báða brúarenda brúarinnar yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi.

Bílum verður hleypt einu sinni í gegnum framkvæmdasvæðið, klukkan 22.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn