Hornafjörður óskar eftir tilboðum í endurnýjun á yfirborðsefni á Bárunni
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í endurnýjun á yfirborðsefni á Bárunni, 2. áfanga, með skilafresti 25. júní 2026.
Sveitarfélagið Hornafjörður, sem verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Báran – endurnýjun á yfirborðsefni – 2. áfangi“. Útboðsnúmer er 202605839. Verkið felst í uppsetningu aðstöðu, niðurrifi núverandi gervigrasskerfis og undirbúningi burðarlags fyrir lagningu nýs gervigrass á um 3.744 m² svæði. Að framkvæmd lokinni skal vinnusvæði vera í því ástandi að það uppfylli allar kröfur útboðsgagna fyrir áframhaldandi framkvæmdir í síðari áfanga verksins. Verklok eru 11. september 2026. Skilafrestur tilboða er 25. júní 2026 kl. 12:00. Rafræn opnun tilboða fer fram á sama tíma. Ekki verður haldinn eiginlegur opnunarfundur þar sem bjóðendur geta verið viðstaddir. Allir bjóðendur fá senda tilkynningu um að opnun hafi farið fram og fá senda opnunarskýrslu á netfang sitt. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is