Hönnun og smíði stálgrindarhúss í Reykjanesbæ
Consensa fyrir hönd Kölku óskar eftir tilboðum í hönnun og smíði stálgrindarhúss og er skilafrestur til 4. maí 2026 kl. 12:00.
Consensa, fyrir hönd Kölku, óskar eftir tilboðum í hönnun og smíði stálgrindarhúss. Verkið felur í sér hönnun og smíði stálgrindarhúss samkvæmt skilmálum útboðslýsingar. Mannvirkið skal vera samtals 1.440 m² að stærð. Húsið mun rísa að Berghellu 7, 230 Reykjanesbæ, þar sem Kalka er með starfsemi sína.
Útboðsgögn verða afhent frá og með 16. apríl 2026 kl. 00:00. Skilafrestur tilboða er til 4. maí 2026 kl. 12:00. Opnun tilboða mun fara fram 4. maí 2026 kl. 12:05. Um er að ræða framkvæmd og vörukaup.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is