HMS minnir á skráningarskyldu leigusala og heimild til sekta
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) sendir nú út bréf til mögulegra leigusala til að minna á nýja skráningarskyldu leigusamninga í Leiguskrá. Frá og með 1. janúar 2026 verður skráning skylda og vanræksla getur leitt til stjórnvaldssekta.
Heimild: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)