Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust

Samningur hefur verið gerður um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ, sem opnar að nýju næsta haust. Rýmin eru ætluð einstaklingum sem lokið hafa meðferð á Landspítala og hafa færni- og hei

Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust
Mynd: gang chen / Pexels

Samningur hefur verið gerður um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ, sem opnar að nýju næsta haust. Rýmin eru ætluð einstaklingum sem lokið hafa meðferð á Landspítala og hafa færni- og heilsumat, en dvöl þeirra er tímabundin þar til varanlegt hjúkrunarheimili býðst. Opnun Hlévangs er ætlað að létta álagi af bráðamóttöku Landspítala.

Hlévangi var lokað um síðustu áramót þegar nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu fyrir 80 íbúa var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ. Húsnæði Hlévangs er í eigu Reykjanesbæjar og hafa samningar tekist milli sveitarfélagsins og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um tveggja ára leigu með möguleika á framlengingu. Heilbrigðisráðuneytið fjármagnar reksturinn og útvegar tæki og búnað, en Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun sjá um reksturinn. Ráðast þurfti í endurbætur á húsnæðinu til að mæta þörfum íbúa og starfsfólks.

Með opnun rýma í Urðarhvarfi, á Vífilsstöðum og á Hlévangi í haust mun Landspítali hafa samtals 169 skammtímahjúkrunarrými til ráðstöfunar. Raunfjölgun skammtímahjúkrunarrýma á árinu nemur 124 rýmum.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir

Heimild: Víkurfréttir

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →