Herjólfur III gæti orðið haffær í lok júlí
Vinna við Herjólf III gengur vel og gæti skipið orðið haffært í lok júlí. Varahlutir eru komnir til birgja og prófanir á björgunarbúnaði fara fram á mánudag.
Vinna við ferjuskipið Herjólf III er vel á veg komin og er vonast til að skipið verði tilbúið til siglinga fyrir lok júlí, gangi áætlanir eftir. Á mánudag er fyrirhugað að framkvæma prófun á björgunarbúnaði skipsins, þar sem búnaðurinn verður leystur út til að sannreyna virkni hans.
Sólveig Gísladóttir, sérfræðingur á samskiptadeild Vegagerðarinnar, staðfestir að nauðsynlegir varahlutir, sem beðið hefur verið eftir, séu nú komnir til birgja. Hún segir að ef ekkert óvænt komi upp á lokametrunum megi búast við að hægt verði að óska eftir haffærisskírteini á skipið og að það verði tilbúið fyrir lok júlí.
Jafnframt er dýpi í Landeyjahöfn talið gott um þessar mundir, samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingum á hafnadeild Vegagerðarinnar. Stefnt er að dýpkun innan hafnarinnar eftir um tvær vikur.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Eyjafréttir
Heimild: Eyjafréttir