Héraðsbúar hneykslaðir á hugmyndum um hylkjahótel í Valaskjálf
Eigendur Hótel Valaskjálfar á Egilsstöðum skoða að breyta gamla félagsheimilinu og aðalviðburðasalnum á Héraði í hylkjahótel eftir vatnstjón. Hugmyndin hefur vakið mikla hneykslun meðal íbúa sem líta á salinn sem menningarhús.
Óvíst er hvort fleiri dansleikir eða tónleikar verði haldnir í salnum við Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum, gamla félagsheimilinu og aðalviðburðasalnum á Héraði. Mikill viðgerðarkostnaður eftir vatnstjón varð til þess að eigendur skoða að breyta salnum í gistirými.
Það var högg fyrir eigendur Hótel Valaskjálfar þegar heitavatnslagnir brustu í júní og vatn flæddi um veislusal hótelsins og skemmdi sviðið, dansgólf og bar. Þá var ljóst að salurinn væri ónothæfur, gólfefni ónýt og miklar viðgerðir fram undan.
Eigendur Hótel Valaskjálfar vildu ekki veita viðtal þegar fréttastofa hafði samband en staðfestu að til skoðunar væri að breyta salnum. Jóhann Pétur Reyndal, annar eigenda, sagði í viðtali við Austurfrétt að rekstur salsins hefði skilað tapi undanfarin ár.
Í ljósi aðstæðna væru þeir að skoða ýmsa kosti, en einn þeirra væri að breyta salnum í svokallað hylkjahótel – þar sem fólk gistir í litlum einingum sem líkjast oft frekar einkakojum en herbergjum.
En salurinn við Hótel Valaskjálf er íbúum á Héraði mörgum kær. Hann var byggður 1966 sem félagsheimili Egilsstaða og hefur síðan hýst óteljandi samkomur, dansleiki, tónleika, leiksýningar, góðgerðarviðburði, útskriftir menntaskólanema og svo mætti lengi telja.
Tilfinningarnar eru greinilegar á íbúahópum á Facebook, þar sem íbúar lýsa vonbrigðum með hugmynd eigenda og skora sumir á sveitarfélagið að grípa inn í, salurinn sé hluti af menningarlífi og sögu staðarins.
Athugasemdirnar eru ótal margar, en margir virðast hneykslaðir á áformunum og sammælast um að það megi ekki breyta salnum í gistirými.
Heimild: RÚV