Rafvæðing efnisvinnslu í Stapafellsnámu

Ístak

Rafvæðing efnisvinnslu í Stapafellsnámu
Mynd: rescriptt rescriptt / Pexels

Ístak ríður á vaðið í grænni umbreytingu og hefur rafvætt efnisvinnslu sína í Stapafellsnámu. Starfsemin er nú keyrð á 100% hreinni íslenskri raforku, sem markar stórt skref í átt að sjálfbærari framtíð og sýnir hvernig hægt er að lágmarka umhverfisáhrif í þungaiðnaði.

Verkefnið hefur kallað á öfluga innviðauppbyggingu á svæðinu. Ný 1.250 Ampera heimtaug er komin í gagnið ásamt sérhönnuðum heimtaugargámi sem stýrir orkudreifingu og hleðslustöðvum. Þá sér öflug 200 kW DC hraðhleðslustöð um að halda vinnuvélum og flutningatækjum stöðugt gangandi á grænni orku.

Mölun steinefna með rafmagni hófst í maí 2026 í samstarfi við Skútaberg. Kónbrjótsamstæðan á svæðinu er að fullu rafdrifin og rafknúin LiuGong 870 hjólaskófla annast alla efnisflutninga við brjótana. Eftir því sem næst verður komist er þetta í fyrsta sinn sem námuvinnsla af þessari stærðargráðu er keyrð að fullu á rafmagni hér á landi.

Sjálfbærni sem skilar árangri

Ávinningurinn af þessari tæknivæðingu er fljótur að skila sér. Við vinnslu á um 30.000 m³ af efni sparast um 75.000 lítrar af jarðefnaeldsneyti, sem þýðir að við komum í veg fyrir losun á hvorki meira né minna en 201 tonni af CO₂. Þá hefur rafdrifna hjólaskóflan staðist allar væntingar og sannað að græn tækni virkar fullkomlega í krefjandi námustarfsemi.

Framhaldið er jafnframt spennandi, því um mitt ár 2026 tekur Ístak í notkun 100% rafdrifinn dráttarbíl með malarvagni. Með honum verður hægt að flytja efnið úr námunni á vistvænan hátt. Þar með lokast hringurinn og keðjan verður að fullu rafknúin – allt frá fyrstu vinnslu til lokaafhendingar.

→ Lesa upprunaleg grein á Ístak

Heimild: Ístak

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →