Heitt vatn alls staðar um miðnætti
Allir íbúar á Suðurnesjum ættu að vera komnir með eðlilegan þrýsting á heitu vatni um miðnætti samkvæmt upplýsingafulltrúa HS veitna. Lokun á heitu vatni vegna framkvæmda er nú að létta.
Allir íbúar á Suðurnesjum ættu að vera komnir með eðlilegan þrýsting á heitu vatni um miðnætti.
Þetta segir Sigrún Inga Ævarsdóttir, upplýsingafulltrúi HS veitna. Lokað var fyrir heita vatnið á Suðurnesjum í dag vegna framkvæmda á stofnæð hitaveitu við Njarðarbraut og við dælustöð á Fitjum.
Nú þegar er komið jafnvægi á heita vatnið á flestum stöðum í Reykjanesbæ og heitt vatn er byrjað að streyma í Voga og Suðurnesjabæ.
Vogar á Vatnsleysuströnd.
Heimild: RÚV