Heitavatnsborun að hefjast við Langasand
Undirbúningur er hafinn á Akranesi vegna rannsóknarborunar eftir heitu vatni við Langasand, en Veitur standa að framkvæmdinni. Jarðvegsframkvæmdir hefjast á næstu dögum á þeim stað þar sem vatnspósturinn er núna við Jaðarsbraut, og Akraneskaupstaður
Undirbúningur er hafinn á Akranesi vegna rannsóknarborunar eftir heitu vatni við Langasand, en Veitur standa að framkvæmdinni. Jarðvegsframkvæmdir hefjast á næstu dögum á þeim stað þar sem vatnspósturinn er núna við Jaðarsbraut, og Akraneskaupstaður hefur gefið út framkvæmdaleyfi. Fyrstu vörubílar voru fluttir á framkvæmdasvæðið í þessari viku til að undirbúa borplan.
Tilgangur borunarinnar er að kanna hvort nýtanlegan jarðhita sé að finna á svæðinu. Holan verður boruð niður á um 800 til 1.200 metra dýpi. Þessi framkvæmd er liður í undirbúningi Veitna til að mæta aukinni eftirspurn eftir heitu vatni á Akranesi og í Borgarfirði.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn