Heimili landsins gætu þurft að færa fórnir

Seðlabankastjóri bendir á að íslenskir launþegar gætu þurft að sæta hækkun olíuverðs vegna stöðu efnahagsmála. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur áhyggjur af umróti á alþjóðamörkuðum og auknum vanskilum í byggingariðnaði.

Heimili landsins gætu þurft að færa fórnir
Mynd: Mathias Reding / Pexels

Seðlabankastjóri telur líklegt að íslenskir launþegar þurfi að taka á sig hækkun olíuverðs, þar sem staða efnahagsmála bjóði ekki upp á annað.

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur áhyggjur af umróti á alþjóðamörkuðum og vísbendingum um aukinn fjölda vanskilamála í byggingariðnaði.

Nefndin greinir frá því að skýr merki séu um að efnahagslífið sé að kólna. Atvinnuleysi er í aukningu, nú einnig meðal íslenskra ríkisborgara, en í sumar var það einkum bundið við erlenda ríkisborgara. Framboð á íbúðum hefur sjaldan verið meira og nýjar íbúðir seljast hægt, sem veldur byggingaverktökum vandræðum og hefur leitt til aukins fjölda vanskilamála.

Ytra umhverfið er sömuleiðis óhagfellt. Ekki sér fyrir endann á olíukrísunni og verð á dísilolíu hefur náð hæstu hæðum. Alþjóðleg verðbólga er þrálát, helstu seðlabankar heims hafa hækkað vexti og vaxandi áhyggjur eru af mögulegri dýfu á hlutabréfamörkuðum.

Þrátt fyrir krefjandi stöðu er Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, bjartsýnn á að íslenska hagkerfið geti staðið af sér vindinn, en það gæti þýtt að heimili landsins þurfi að færa fórnir.

„Núna er bara spurning um það hvernig við ætlum að spila úr stöðunni, þá er ég að tala um sem þjóð. Laun hérna hafa hækkað mjög mikið, við erum komin með hæstu laun í Evrópu, ef launatengd gjöld eru tekin með. Kaupmáttur hefur vaxið mjög og á sama tíma eru blikur á lofti erlendis,“ segir Ásgeir.

Hann telur að það sé tími til þess, eins og á vinnumarkaði, að það sé ekki hægt að fara fram á launahækkanir með sama hraða og áður. „Mögulega er ekki hægt að bæta fólki hækkanir á olíuverði bara með því að hækka launin, tökum sem dæmi launin sem dæmi. Bara eins og núna. Mögulega er olíuverðið eitthvað sem við þurfum að ta“

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn