Heilsuvernd mun reka hjúkrunarheimilið
Heilsuvernd mun reka nýtt hjúkrunarheimili við Þursaholt á Akureyri, en heimilið mun hafa 140 hjúkrunarrými. Framkvæmdasýsla – Ríkiseignir hafa samið við fasteignafélagið Reiti um uppbyggingu hússins og leigu til 25 ára.
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili mun reka nýtt hjúkrunarheimili við Þursaholt á Akureyri. Þetta var formlega afgreitt á fundi með Sjúkratryggingum Íslands.
Á nýja heimilinu verða 140 hjúkrunarrými. Fyrr í sumar var tilkynnt að Framkvæmdasýsla – Ríkiseignir hefðu samið við fasteignafélagið Reiti um uppbyggingu hússins og leigu til 25 ára.
Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, segir að niðurstaðan sé mikil tímamót. Nú fari í hönd samstarf við Framkvæmdasýsluna og Reiti um hönnun og uppbyggingu húsnæðisins.
Hann bætir við að framundan sé mikil uppbygging þjónustu fyrir aldraða á Akureyri og að verkefnið muni bæta verulega aðstöðu og möguleika til þjónustu. Heilsuvernd rekur nú þegar hjúkrunarheimilin Hlíð og Lögmannshlíð á Akureyri.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net
Heimild: Akureyri.net