Haustbraut 2 - Búsetukjarni
Garðabær hefur hafið útboð vegna byggingar á 600 fermetra búsetukjarna við Haustbraut 2. Um er að ræða einnar hæðar steinsteypt hús með viðarklæðningu að utan.
Garðabær óskar eftir tilboðum í byggingu á 600 fermetra búsetukjarna við Haustbraut 2.
Um er að ræða einnar hæðar steinsteypt hús sem verður klætt að utan með viðarklæðningu. Verktaki mun fá lóðina afhenta girta og með tilbúnum jarðvegspúða undir sökkla.
Útboðið er almennt og opið öllum áhugasömum aðilum. Tilboðsfrestur lýkur 6. október klukkan 11:00 og skulu þeim skilað rafrænt á útboðsgátt Garðabæjar.
Útboðsgögn eru aðgengileg á vefslóðinni gardabaer.utbodsgatt.is/haustbraut-2-busetukjarni.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær útboð
Heimild: Garðabær útboð