Hannesarsteinn verður færður

Framkvæmdir við Stykkishólmsveg eru langt komnar og mun Vegagerðin færa Hannesarstein vegna breytinga á veglínu.

Hannesarsteinn verður færður
Mynd: flickr / CC BY-SA / Pexels

Framkvæmdir við Stykkishólmsveg, sem hófust í lok apríl, eru langt komnar en Vegagerðin stendur fyrir verkinu. Framkvæmdirnar ná yfir um 3,4 kílómetra kafla og fela í sér breikkun og styrkingu vegar, nýlögn ræsa og nýlögn á bundnu slitlagi.

Gert er ráð fyrir að vegurinn verði 8 metra breiður, með tveimur 3,5 metra breiðum akbrautum og 0,5 metra breiðum öxlum. Vegna breikkunar vegarins og breytinga á veglínu mun Vegagerðin færa girðingar meðfram Stykkishólmsvegi fjær veginum þar sem þess er þörf, en samkvæmt öryggisstöðlum skal girðing vera í minnst 15 metra fjarlægð frá miðlínu vegar.

Veglínan er lítillega færð til á köflum og því þarf að færa Hannesarstein sem nú stendur við afleggjara að kirkjugarði og Nýrækt. Ný veglína liggur yfir núverandi staðsetningu steinsins og var það niðurstaða Vegagerðarinnar að steinninn yrði að víkja.

Gert er ráð fyrir að steinninn verði færður til svo hægt sé að klára vegaframkvæmdir og hann síðar færður á endanlega staðsetningu þegar ný hönnun á göngustíg meðfram veginum liggur fyrir. Hannesarsteinn dregur nafn sitt af Hannesi Hannessyni, sem jafnan var kallaður Hannes stutti.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sveitarfélagið Stykkishólmur

Heimild: Sveitarfélagið Stykkishólmur

Deila Facebook X LinkedIn