Fjármálaráðherra fær heimild til að selja ríkiseignir víða um land

Fjárlagafrumvarp næsta árs, sem Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hefur kynnt, felur í sér heimildir til sölu á fjölda ríkiseigna. Meðal þeirra eru húsnæði lögreglunnar á Hverfisgötu og Ríkislögreglustjóra á Rauðarárstíg, Tollhúsið við Tryggvagötu og húsnæði Vínbúðarinna

Fjármálaráðherra fær heimild til að selja ríkiseignir víða um land
Mynd: George Becker / Pexels

Fjárlagafrumvarp næsta árs, sem Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hefur kynnt, felur í sér heimildir til sölu á fjölda ríkiseigna. Meðal þeirra eru húsnæði lögreglunnar á Hverfisgötu og Ríkislögreglustjóra á Rauðarárstíg, Tollhúsið við Tryggvagötu og húsnæði Vínbúðarinnar í Austurstræti.

Einnig er gert ráð fyrir sölu á húsnæði Vínbúðarinnar á Hólabraut á Akureyri og fasteignum ríkisins á Hólum í Hjaltadal. Þá er heimild til að selja eða ráðstafa eignarhlut í flugafgreiðslu við Nauthólsveg og ratsjárhúsi á Reykjavíkurflugvelli.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að heildarafkoma ríkisins verði 5 milljarðar króna í plús á næsta ári. Markmiðið er að stöðva hallarekstur ríkisins og að skuldir þess byrji að lækka árið 2029.

Í frumvarpinu er bent á að aukið framboð húsnæðis, ásamt minna launaskriði, gefi fyrirheit um að verðbólga geti lækkað hratt á næsta ári.

Deila Facebook X LinkedIn