Hafnarsvæði H1 - Nýtt deiliskipulag
Sveitarfélagið Ölfus hefur samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir Hafnarsvæði H1 þar sem gert er ráð fyrir allt að 23 lóðum fyrir hafnsækna starfsemi. Skipulagsstofnun hefur staðfest afgreiðsluna.
Sveitarfélagið Ölfus hefur samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir Hafnarsvæði H1. Í hinu nýja skipulagi er gert ráð fyrir allt að 23 lóðum sem ætlaðar eru fyrir hafnsækna starfsemi.
Skipulagsstofnun hefur staðfest afgreiðslu málsins og hefur auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins verið birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Heimild: Skipulagsgáttin