Björgunaraðgerðir standa yfir eftir flóð
Björgunaraðgerðir standa yfir nærri göngum virkjunar í Nepal eftir hamfaraflóð í síðustu viku. Tæplega níu hundruð manna er saknað sem voru við störf í virkjuninni þegar flóðið féll. Talið er að nokkur hundruð þeirra séu föst í göngum virkjunarinnar. Björgunarfólk reynir að komast inn í gö
Björgunaraðgerðir standa yfir nærri göngum virkjunar í Nepal eftir hamfaraflóð í síðustu viku. Tæplega níu hundruð manna er saknað sem voru við störf í virkjuninni þegar flóðið féll. Talið er að nokkur hundruð þeirra séu föst í göngum virkjunarinnar. Björgunarfólk reynir að komast inn í göngin en enn er óljóst hvar fólkið er að finna.
Flóðið hefur einnig haft áhrif á innviði menntakerfisins. Að minnsta kosti 19 skólar urðu undir hamfaraflóðinu. Níu skólar gjöreyðilögðust og sjö aðrir eyðilögðust að hluta. Menntamálaráðuneyti Nepals segir að yfir 200 nemenda sé saknað.
Alls eru 919 sagðir látnir og tæplega 4.800 er saknað í Nepal og Tíbet eftir flóðið. Yfirvöld í Nepal segja að þess verði gætt að skrásetja allar jarðneskar leifar, hvar þær eru jarðsettar og krufningarskýrslur og allar tiltækar upplýsingar verði skráðar svo hægt verði að bera kennsl á fórnarlömb hamfaraflóðsins.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að um 200 lík hafi verið jarðsett í gær í Chitwan-héraði í Nepal og til standi að jarðsetja yfir 70 í dag. Yfirvöld í Uttar Pradesh á Indlandi segja 17 lík hafa fundist í ám sem renna frá Nepal.
→ Lesa upprunalegu fréttina á RÚV
Heimild: RÚV