Fimm íbúðir útbúnar án leyfis

Eigendur húss í Hólahverfi í Reykjavík útbjuggu fimm nýjar íbúðir í húsinu án tilskilinna byggingarleyfa. Framkvæmdirnar fólust í því að grafið var út úr sökkulrými í kjallara og þar útbúnar fjórar íbúðir, auk einnar í bílskúr.

Fimm íbúðir útbúnar án leyfis
Mynd: George Becker / Pexels

Eigendur húss í Hólahverfi í Reykjavík útbjuggu fimm nýjar íbúðir í húsinu án tilskilinna byggingarleyfa. Framkvæmdirnar fólust í því að grafið var út úr sökkulrými í kjallara og þar útbúnar fjórar íbúðir, auk einnar í bílskúr.

Húsið, sem reist var árið 1973, var 287 fermetrar samkvæmt skipulagi en varð 429,5 fermetrar eftir framkvæmdirnar. Byggingarfulltrúi Reykjavíkur krafðist þess að húsinu yrði komið í fyrra horf innan 60 daga, ella yrðu lagðar á dagsektir.

Eigendur kærðu ákvörðunina til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál. Nefndin taldi 60 daga frestinn of skamman, meðal annars vegna umfangs framkvæmdanna og þess að íbúðirnar væru í útleigu samkvæmt samningum með lögbundnum uppsagnarfresti.

Tímamörkin voru því felld úr gildi. Nefndin benti jafnframt á að eigendurnir gætu sótt um byggingarleyfi vegna breytinganna á kjallaranum.

Deila Facebook X LinkedIn