„Gríðarlega stór dagur í íslenskri orkusögu“
Fyrsta vindorkuver Íslands hefur verið gangsett í Vaðöldu. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir daginn marka tímamót í íslenskri orkusögu.
„Þetta er gríðarlega stór dagur í íslenskri orkusögu, við erum að opna nýjan kafla,“ sagði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við opnun fyrsta vindorkuvers landsins í Vaðöldu í dag.
Fjármálaráðherra telur Ísland vera í góðri stöðu til að nýta kosti vindorku. „Þetta opnar algjörlega ný tækifæri fyrir orkuvinnslu inn í framtíðina.“
Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun greindi frá því að vindorkuverið kosti yfir 20 milljarða króna.
Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar, lýsti deginum sem merkilegum, þrátt fyrir að framkvæmdum við Vaðölduver sé ekki að fullu lokið. „Því við erum í fyrsta sinn að skila rafmagni af þessum vindmyllum inn á netið.“
Í Vaðöldu eru nú þegar komnar upp 14 vindmyllur og verða þær orðnar 28 í lok næsta árs. Vindmylluvirkjunin verður því komin í fullan rekstur fyrir lok árs 2027 og mun framleiða 440 gígavattstundir á ári.
Ásbjörg sagði nýtingu vindorku fara vel saman með öðrum orkugjöfum hér á landi. „Vegna þess að vindurinn vinnur svo vel með til dæmis vatnsaflinu.“ Hún útskýrði að hægt væri að nýta miðlunarlónin á Þjórsár- og Tungnaársvæði, þar sem fyrir eru sjö vatnsaflsstöðvar, sem „græn batterí“ til að halda aftur af vatni og spara það á dögum þegar vindurinn blæs og getur framleitt rafmagn.
Heimild: RÚV