Greiðslubyrði enn þung í sögulegu samhengi

Greiðslubyrði nýrra húsnæðislána er enn þung í sögulegu samhengi, þrátt fyrir að óverðtryggð lán hafi orðið viðráðanlegri. Fasteignamarkaðurinn hefur verið kaldari á þessu ári en í fyrra.

Greiðslubyrði enn þung í sögulegu samhengi
Mynd: Jan van der Wolf / Pexels

Greiðslubyrði nýrra húsnæðislána, bæði verðtryggðra og óverðtryggðra, er enn þung í sögulegu samhengi. Þetta á sér stað þó að greiðslur af óverðtryggðum íbúðalánum hafi orðið viðráðanlegri á síðustu árum. Þetta má rekja til vaxtalækkana og launahækkana sem hafa verið meiri en íbúðaverðshækkanir.

Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar sem birt var í morgun.

Fasteignamarkaðurinn var kaldari á fyrri helmingi þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Færri kaupsamningum vegna íbúðahúsnæðis hefur verið þinglýst í ár og fólk er lengur að selja íbúðir sínar en áður.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn