Grasrótin á götunni: „Grunsamlegt að það sé verið að loka þessu öllu á sama tíma“
Fjölmörgum grasrótarverkefnum og listamönnum hefur verið sagt upp húsnæði sínu á vegum Reykjavíkurborgar. Þetta á meðal annars við starfsemi í Gufunesi, Skerjafirði, á Sævarhöfða og Bergþórugötu.
Víðs vegar um borgina hefur verið leigt út iðnaðarhúsnæði, sem er í einhvers konar biðstöðu og óljóst hvernig á að nýta í framtíðinni, til listamanna og ýmissa samfélagsverkefna.
Í útvarpsþættinum Lestinni var fjallað ítarlega um málið og rætt við skapandi einstaklinga og hópa sem nú hafa misst húsnæði sitt á vegum Reykjavíkurborgar. Einn listamannanna lýsir því sem svo að borgin sé að losa sig við allt listalíf á einu bretti.
Í Gufunesi, Skerjafirði, á Sævarhöfða og Bergþórugötu starfa ýmsir listamenn og hópar, allt frá parkour til Sniglanna, og frá tónlistarsköpun til reiðhjólaviðgerða. Nú hefur fjölmörgum slíkum samningum verið sagt upp og hin ýmsu grasrótarverkefni þurfa að finna sér nýtt húsnæði ef þau eiga að tryggja sér framhaldslíf.
Á Sævarhöfða hitti Lestin meðal annars forsprakka Parkour-skúrsins, Viktor Yngva Ísaksson. „Þetta eru félagasamtök sem snúast um frjálsa hreyfingu ungra krakka og fullorðinna í gegnum parkour,“ útskýrir Viktor Yngvi. Hann segir parkour henta mörgum sem finna sig ekki í hefðbundnari íþróttum eins og fótbolta, þar sem það snúist um líkamshreyfingu en einnig félagsskapinn. „Krakkar sem þurfa að hreyfa sig mikið, hlaupa og prófa eitthvað nýtt,“ segir hann um þá sem sækja í parkour.
Allir í byggingunni á Sævarhöfða þurfa að vera komnir út úr húsnæðinu fyrir 1. nóvember og nú er unnið að því að finna styrki og nýtt húsnæði svo starfsemin geti haldið áfram.
Einnig eru á Sævarhöfða Reiðhjólabændur, félagasamtök sem gera upp reiðhjól og gefa þau þeim sem á þurfa að halda. Á verkstæðið mæta til dæmis hælisleitendur sem mega ekki vinna hér á landi og vilja hafa eitthvað fyrir stafni. Þá er einnig nefnt Hringleikur, sirkus.
Heimild: RÚV