Google fjárfestir fyrir milljarða í Finnlandi
Tæknirisan Google hyggst fjárfesta fyrir meira en þrettán milljarða evra í Finnlandi á næstu tveimur árum, meðal annars í uppbyggingu gagnavera og innviða tengdum gervigreind.
Tæknifyrirtækið Google mun fjárfesta fyrir meira en þrettán milljarða evra í Finnlandi á næstu tveimur árum.
Fyrirtækið greindi frá þessu í morgun. Til stendur meðal annars að byggja upp gagnaver og innviði sem tengjast gervigreind.
Einnig verður fjárfest í orkuinnviðum og í samstarfi við sveitarfélög þar sem uppbyggingin fer fram.
Í tilkynningu Google kemur fram að þessi fjárfesting sé sú stærsta sem fyrirtækið hafi ákveðið í Evrópu. Google hefur starfað í Finnlandi undanfarin fimmtán ár.
„Ákvörðun Google er til marks um styrk okkar á þessu sviði,“ er haft eftir Petteri Orpo forsætisráðherra Finnlands í tilkynningu Google. Finnsk stjórnvöld hafa leitað eftir slíkum fjárfestingum að undanförnu.
Google segir að uppbygging verkefnisins muni styðja við um 37 þúsund störf í Finnlandi og um sjö þúsund störf eftir að framkvæmdum lýkur og rekstur hefst.
Heimild: RÚV