Göngustígurinn að The Wanderer’s Perspective
Unnið hefur verið að lagningu nýs göngustígs að listaverkinu The Wanderer’s Perspective undanfarnar vikur, samhliða því sem bílastæði við svæðið hefur verið malbikað. Framkvæmdirnar miða að því að bæta aðgengi að listaverkinu og hefur umhverfi þess t
Unnið hefur verið að lagningu nýs göngustígs að listaverkinu The Wanderer’s Perspective undanfarnar vikur, samhliða því sem bílastæði við svæðið hefur verið malbikað. Framkvæmdirnar miða að því að bæta aðgengi að listaverkinu og hefur umhverfi þess tekið miklum breytingum í ferlinu.
Það eru Hellugerð Agnars og HS Vélaverk sem sjá um framkvæmdirnar við stíga- og bílastæðagerðina. Halldór B. Halldórsson hefur fest framvindu verksins á filmu með drónamyndatöku yfir svæðinu við Flakkarann, þar sem sjá má hvernig heildarmynd svæðisins og aðkoman að verkinu er að mótast.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Vestmannaeyjabær
Heimild: Vestmannaeyjabær