Göngin hreinsuð að næturlagi í næstu viku

Vegagerðin mun hreinsa og viðhalda Hvalfjarðargöngum að næturlagi dagana 7. til 9. september. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát vegna mögulegrar hálku og fylgja leiðbeiningum starfsfólks.

Göngin hreinsuð að næturlagi í næstu viku
Mynd: Braggi.is

Vegagerðin mun framkvæma þrif og viðhald í Hvalfjarðargöngum að næturlagi dagana 7. til og með 9. september.

Vinna mun fara fram á milli klukkan 23:00 og 6:30. Á meðan framkvæmdir standa yfir verður fylgdarakstur um göngin.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og fylgja leiðbeiningum starfsfólks, sérstaklega vegna mögulegrar hálku sem getur myndast við þrifin. Götusópar, vatnsbílar og körfubílar verða við störf í göngunum.

Mikilvægt er að aka varlega og taka ekki fram úr ökutækjum sem stýra fylgdarakstri.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn

Heimild: Skessuhorn

Deila Facebook X LinkedIn