Göng og brú ráða Guðmund Daða sem forstjóra
Guðmundur Daði Rúnarsson hefur verið ráðinn forstjóri innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. Fyrirtækið á að fjármagna framkvæmdir á samgöngumannvirkjum og taka að sér uppbyggingu innviða. Guðmundur Daði var áður framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á
Guðmundur Daði Rúnarsson hefur verið ráðinn forstjóri innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. Fyrirtækið á að fjármagna framkvæmdir á samgöngumannvirkjum og taka að sér uppbyggingu innviða. Guðmundur Daði var áður framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli og vann að uppbyggingu og framkvæmdum flugvallarins í áratug. Guðmundur Daði Rúnarsson.RÚV / Ragnar Visage
Heimild: RÚV