Geta stóraukið fræframleiðslu með nýju húsi í Vaglaskógi
Nýtt gróðurhús í Vaglaskógi mun stórauka framleiðslu á hrymsfræjum, en starfsfólk vonast til að ná milljóna fræafköstum á ári.
Framleiðsla á fræjum úr trjátegundinni hrymi gæti stóraukist eftir byggingu nýs gróðurhúss í Vaglaskógi. Starfsfólk vonast til að fræhúsið skili milljónum fræja á ári.
Um hundrað milljónir króna fóru í nýja gróðurhúsið, sem stendur við hlið eldra fræhússins. Ætlunin er að nota það til ræktunar á hrymsfræjum, en þau eru aðeins framleidd á Vöglum og hefur eftirspurnin verið meiri en framboð.
Hrymur er afrakstur áralangs kynbótastarfs og er afkvæmi tveggja erlendra lerkitegunda. Trén sem af því leiða eru harðger og hraðvaxin. Skógræktarfólk vonar að fræhúsið geti síðar meir hýst fleiri tegundir.
Heimild: RÚV