Gatnaframkvæmdir í kvöld við Grundahverfi á Kjalarnesi

Malbikun á 980 metra kafla Vesturlandsvegar við Grundahverfi á Kjalarnesi hefst í kvöld, þriðjudaginn 2. júní. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá klukkan 19:00 í kvöld til klukkan 07:00 á miðvikudagsmorgun, 3. júní. Á verksvæðinu verður umferðastýri

Gatnaframkvæmdir í kvöld við Grundahverfi á Kjalarnesi
Mynd: flickr (CC BY-SA)

Malbikun á 980 metra kafla Vesturlandsvegar við Grundahverfi á Kjalarnesi hefst í kvöld, þriðjudaginn 2. júní. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá klukkan 19:00 í kvöld til klukkan 07:00 á miðvikudagsmorgun, 3. júní. Á verksvæðinu verður umferðastýring og viðeigandi merkingar og hjáleiðir settar upp til að tryggja öryggi vegfarenda. Vegfarendur eru hvattir til að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát þar sem vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki starfa nálægt akstursbrautum.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn

Heimild: Skessuhorn

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →