Gatnaframkvæmdir á Bröttugötu – Útboð
Borgarbyggð, Veitur og Rarik hafa auglýst útboð vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Bröttugötu í Borgarnesi. Um er að ræða gatna- og gangstéttargerð ásamt lagningu dreifikerfa fyrir fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og rafveitu. Framkvæmdir Borgarbyggða
Borgarbyggð, Veitur og Rarik hafa auglýst útboð vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Bröttugötu í Borgarnesi. Um er að ræða gatna- og gangstéttargerð ásamt lagningu dreifikerfa fyrir fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og rafveitu.
Framkvæmdir Borgarbyggðar fela í sér endurnýjun á yfirborði götu, bílastæðis og gangstétta. Helstu magntölur eru 1.760 rúmmetrar uppgröftur, 310 rúmmetrar fylling, 1.100 rúmmetrar styrktarlag, 210 rúmmetrar burðarlag, 1.100 fermetrar malbik og 390 fermetrar steyptar gangstéttir.
Veitur ohf. munu leggja dreifikerfi fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu samhliða gatnagerðinni. Þar er um að ræða 240 metra fráveitulagnir, 245 metra vatnsveitulagnir og 320 metra hitaveitulagnir, auk 1.360 rúmmetra lagnaskurða. Rarik ohf. mun grafa lagnaskurði, verja eldri lagnir, taka niður og setja upp tvo tengiskápa og ganga frá í kringum strengi í skurði. Rarik sér einnig um lagningu strengja og jarðvíra ásamt tengivinnu, en raflagnir eru 210 metrar.
Útboðið opnaði þriðjudaginn 19. maí 2026 og er hægt að nálgast útboðsgögn á útboðsvef Borgarbyggðar hjá Ajour. Skilafrestur tilboða er til klukkan 10:00 þann 5. júní 2026. Umsjónaraðili útboðsins er Hlynur Ólafsson, verkefnastjóri framkvæmda.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarbyggð
Heimild: Borgarbyggð