Garðvík ósátt við tjónamat eftir brunann: „Eina úrræðið að leita til héraðsdóms“

Framkvæmdastjóri Garðvíkur á Húsavík lýsir mikilli óánægju með stöðu tryggingamáls eftir brunann í verkstæði fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur hafnað tjónamati frá Sjóvá og undirbýr nú matsbeiðni til héraðsdóms.

Garðvík ósátt við tjónamat eftir brunann: „Eina úrræðið að leita til héraðsdóms“
Mynd: needpix.com (CC0)

Guðmundur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Garðvíkur á Húsavík, lýsir mikilli óánægju með stöðu tryggingamáls, rúmum sjö mánuðum eftir að verkstæði Garðvíkur við Haukamýri brann.

Fyrirtækið undirbýr nú matsbeiðni til héraðsdóms eftir að hafa hafnað tjónamati sem unnið var fyrir tryggingafélagið Sjóvá.

Guðmundur greindi frá þessu á Facebook.

→ Lesa upprunaleg grein á Húsavík.com

Heimild: Húsavík.com

Deila Facebook X LinkedIn