Garðabær óskar eftir tilboðum í gatnagerð og lagnir á Vífilstaðavegi
Garðabær óskar eftir tilboðum í gatnagerð og lagnir á Vífilstaðavegi frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi, með skilafresti 17. júlí 2026.
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið Vífilstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi – gatnagerð og lagnir. Útboðsnúmer er 2606074.
Verkið felst í jarðvegsskiptum, malbikun gatna og stíga, fráveitu og götulýsingu ásamt yfirborðsfrágangi á Vífilsstaðavegi frá Spítalavegi að Elliðavatnsvegi og nýrri aðkomugötu að golfskála GKG í Garðabæ.
Verkinu skal lokið fyrir 1. júlí 2027.
Helstu magntölur eru: Forsteyptur kantsteinn 900 m Staðsteyptur kantsteinn 1.300 m Strenglagnir 1.500 m Ljósastaurar 49 stk Upphækkun á brunnum 3 stk Niðurföll 45 stk
Útboðsgögn verða afhent rafrænt í útboðskerfinu þriðjudaginn 30. júní 2026 klukkan 14:00. Tilboðum skal skilað rafrænt í útboðskerfið fyrir klukkan 14:00 fimmtudaginn 17. júlí 2026. Opnun tilboða fer fram 17. júlí 2026 klukkan 14:00.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is